Minna tuð - meiri tenging! Fræðslufundur þriðjudaginn 10. febrúar kl. 20 í streymi
Að eiga barn eða ungling með ADHD getur verið krefjandi.
Á þessum fræðslufundi ræðum við hvernig ADHD birtist, hvaða áhrif það hefur á hegðun,
samskipti og líðan og hvernig við getum skapað umhverfi sem talar í takt.
Við skoðum meðal annars:

Hvernig ADHD kemur fram í daglegu lífi

Aðferðir til að styðja við tilfinningastjórnun og sjálfstraust

Hvernig draga má úr krefjandi hegðun og setja skýr mörk

Mikilvægi kerfis og sjónrænna áminninga, minna óþarfa tuð

Leiðir til að efla samskipti og traust milli heimilis og skóla

Það sem virkar fyrir börn og unglinga með ADHD virkar fyrir flest alla. Við hvetjum því öll sem vilja skilja og styðja til að horfa.
Fyrirlesari er Jóna Kristín Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD-samtökunum og grunnskólakennari
Fræðslufundurinn er eingöngu í streymi á facebook síðunni ADHD í beinni eingöngu fyrir félagsfólk samtakanna.Hann er aðgengilegur í tvær vikur eftir streymi.
Árgjald samtakanna er 3950kr og hægt er að skrá sig í samtökin hér:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
Facebook viðburður