Betra líf með ADHD - 35 ára afmælisráðstefna ADHD samtakanna - skráning í fullum gangi!

ADHD samtökin standa fyrir tveggja daga alþjóðlegri afmælisráðstefnu um ADHD sem nefnist „Betra líf með ADHD“ . Ráðstefnan fram fer á Grand Hótel Reykjavík dagana 26. og 27. október 2023.

Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á áskorunum sem einstaklingar með ADHD glíma við, ásamt því að kynna ýmsar lausnir til að takast á við afleiðingar hennar. Kunnir erlendir og íslenskir fyrirlesarar halda erindi og umfjöllunarefnin snerta meðal annars málefni barna, ungmenna og fullorðinna einstaklinga. Meðal fyrirlesara eru Ari Tuckman, sálfræðingur og kynlífsráðgjafi, Kathleen Nadeau, sálfræðingur, Saaskia van der Oord, prófessor í sálfræði, Amori Yee Mikami, prófessor í sálfræði, Lachenmeier, geðlæknir og Dr. Sandra Koji, geðlæknir. Jafnframt verða kynntar til sögunnar nýjar íslenskar rannsóknir um ADHD. Ráðstefnan gagnast bæði fullorðnum, kennurum og öðru fagfólki svo við hvetjum öll til þess að mæta.

Boðið verður upp á streymi fyrir þátttakendur sem ekki eiga heimagengt á ráðstefnuna ásamt því að boðið verður upp á rauntímatúlkun frá ensku yfir á íslensku og öfugt.

Almennt verð á ráðstefnuna er kr. 24.900 en félagsfólk ADHD samtakanna greiðir aðeins kr. 19.900, innifalið í verðinu eru veitingar.

Opnað hefur verið fyrir skráningar og hægt er að skrá sig ásamt því að lesa frekar um ráðstefnuna hér.