Betra líf með ADHD - spjallfundur á Akureyri

Betra líf með ADHD - spjallfundur á Akureyri
Betra líf með ADHD - spjallfundur á Akureyri

Betra líf með ADHD. ADHD Norðurland stendur fyrir opnum spjallfundi á Akureyri, um betra líf með ADHD, fimmtudaginn 12. september næstkomandi. Fundurinn fer fram í húsnæði Grófarinnar, Hafnarstræti 95 og hefst kl. 20:00.

Daglegt líf með ADHD getur sannarlega verið áskorun. Á spjallfundinum skoðum við hvernig vinna má með þessar áskoranir daglegs lífs og jafnvel vekja gamla drauma til lífs! Við skellum á okkur linsum ADHD markþjálfunar og skoðum hvernig má takast á við ADHD og njóta þess. Umsjónarmaður fundarins er Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og stjórnarkona í ADHD samtökunum.

Fundurinn ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Spjallfundir ADHD Norðurland eru haldnir í Grófinni, Hafnarstræti 95., 4. hæð, fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni. Fundirnir eru opnir öllum, félögum í ADHD samtökunum, einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öðrum áhugasömum um ADHD og skildar raskanir. Hægt er að skrá sig á Facebook viðburð fundanna, þar sem fram koma fyrirhugaðir fundir á Akureyri og fundarefni, en áætlað er einn spjallfundur verði haldinn í hverjum mánuði - skráning hér. 

Enginn aðgangseyrir er að fundunum og er ávallt heitt á könnunni.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!