Börn með ADHD og einelti

Opinn spjallfundur um börn með ADHD og einelti.
Opinn spjallfundur um börn með ADHD og einelti.

Börn með ADHD og einelti. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um börn með ADHD og einelti, miðvikudaginn 8. maí nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er forráðamönnum barna með ADHD, nánum aðstandendum og öðrum sem umgangast börn með ADHD í leik eða starfi.

Börn með ADHD verða mjög oft fyrir barðinu á einelti, enda fordómarnir víða og ýmislegt í einkennum ADHD sem leitt getur af sér vanda í félaglegum samskiptum. Börn með ADHD geta einnig orðið gerendur í slíkum málum, ekki síst ef að þeim er þrengt og úrræði skortir. Á fundinum munu Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og Hákon Helgi Leifsson, stjórnarrfólk í ADHD samtökunum, fjalla um ýmsar birtingarmyndir eineltis, eins og þær birtast börnum með ADHD og ræða leiðir til lausnar.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bækling samtakanna og annað fræðsluefni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru yfirleitt fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrá vorannar 2019 hér: Spjallfundir ADHD samtakanna vorið 2019.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.