Ég get! Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir ungmenni með ADHD.

Ég get! Sjálfsstyrkingarnámskeið ungmenna með ADHD
Ég get! Sjálfsstyrkingarnámskeið ungmenna með ADHD

Á næstu dögum mun skráningu ljúka, á sjálfstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna fyrir 14-16 ára ungmenni með ADHD - námskeiðið Ég get! Enn eru öfrá sæti laus, en námskeiði er nú hægt að greiða með frístundastyrkjum sveitarfélaga.

Ég get! er skemmtilegt og fræðandi sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 14-16 ára unglinga með ADHD (8.-10. Bekkur). Námskeiðið samanstendur af fræðslu, umræðum og léttum verkefnum og hvatt er til virkrar þátttöku unglinganna.

Almenn fræðsla um ADHD er mikilvægur þáttur í að unglingarnir öðlist skilning á sjálfum sér og þeim áskorunum sem verða á vegi þeirra í daglegu lífi og sætti sig við greininguna.

Meiri áhersla er þó lögð á að efla sjálfsmynd unglinganna með því að draga fram þá styrkleika sem þeir búa yfir og benda þeim á leiðir til að nýta styrkleikana sína til að vinna með erfiðleikana.

Meðal þess sem fjallað er um er:

Almenn fræðsla um ADHD með öllum þess kostum og göllum

Fylgiraskanir ADHD

Sjálfsmyndin

Mikilvægi greiningarinnar og sátt

Tímastjórnun, skipulagning og markmiðasetning

Tilfinningastjórnun og félagsfærni

Áhættuhegðun og kynvitund

Lífsstíll og sýndarveruleikinn

Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið er 20 klukkustundir og tekur 10 vikur. Fyrsti og síðasti tíminn eru 1 klst, tímar tvö og níu eru 3 klst. Og tímar þrjú til átta eru 2 klst. hver (sjá töflu hér að neðan). 

Foreldrakynning       Miðvikudagur 28. ágúst       kl. 20:00 - 21:00  
1. tími   Laugardagur 7. september   kl. 10:00 - 13:00  
2. tími   Miðvikudagur 11. september   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Miðvikudagur 18. september   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Miðvikudagur 25. september   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Miðvikudagur 2.október   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Miðvikudagur 9. október   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Miðvikudagur 16. október   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 26. október   kl. 10:00 - 13:00  
Foreldrafundur   Þriðjudagur 30. október   kl. 20:00 - 21:00  

 

Tveir umsjónarmenn stjórna námskeiðinu, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingu og Sigrún Jónsdóttir, þroskaþjálfi og ADHD markþjálfi, auk gestafyrirlesara.

Námskeiðið er haldið í sal ADHD að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík. Námskeiðsgjald er kr. 34.500,- en félagsmenn ADHD samtakanna fá kr. 5.000,- endurgreiddar (ef einhver á heimilinu er í samtökunum). Hægt er að skrá sig í ADHD samtökin hér.

Námskeiðið er hægt að greiða að hluta eða í heild, með frístundastyrkjum eða sambærilegum styrkjum eftirfarandi sveitarfélaga: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær og Kópavogur.

 

Skráning er opin hér - örfá sæti laus!