Endurskinsmerki ADHD - Enn vantar sölufólk

ADHD samtökin kynntu í byrjun mánaðar nýtt endurskinsmerki en sala endurskinsmerkja er mikilvægur liður í vitundarmánuði ár hvert. Þar er bæði um að ræða mikilvæga fjáröflun fyrir starfsemi ADHD samtakanna og ekki síður er merkjasölunni ætlað að vekja athygli á málefnum einstaklinga með ADHD.

Þetta er áttunda árið í röð sem ADHD samtökin selja endurskinsmerki í þágu starfseminnar. Sem fyrr leggur Hugleikur Dagsson til teikningu á merkið en það hefur hann gert allt frá því ADHD samtökin hófu endurskinsmerkjasöluna. Líkt og í fyrra var merkið formlega kynnt og fyrstu eintökin afhent á afmælisdegi listamannsins, 5.október.

Fyrstu merkin voru afhent forstjóra Fangelsismálastofnuna rog starfsfólki stofnunarinnar í nýju fangelsi að Hólmsheiði.

Endurskinsmerkin eru til sölu á á skrifstofu ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, Reykjavík og á vefnum www.adhd.is.

Um komandi helgi, dagana 15. og 16. október, verður svo sölufólk á vegum ADHD í Smáralind og Kringlunni. Enn vantar sölumenn og leita samtökin eftir öflugum sölumönnum til að leggja átakinu lið.

Greidd verða rífleg sölulaun.

Áhugasamir geta sett sig í samband við skrifstou ADHD, í síma 581110 eða með pósti á adhd@adhd.is

Ágóði af sölu merkjanna rennur til ADHD samtakanna.

Endurskinsmerki samtakanna

   
2016 2015  
 
2014   2013



  Eldri merki   
   
     
  KAUPA ENDURSKINSMERKI  

 

 Myndir frá afhendingu fyrstu merkjanna