Endurskinsmerki ADHD samtakanna - Athygli, já takk!

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD. Í tilefni af mánuðnum munu ADHD samtökin vekja athygli á málefnum fólks með ADHD, en gera má ráð fyrir að hátt í 20.000 Íslendingar séu með ADHD - greint eða ógreint, börn og fullorðnir. Lýkur mánuðnum með alþjóðlegri afmælisráðstefnu samtakanna 26. til 27. október undir yfirskriftinni - Betra líf með ADHD.

Venju samkvæmt eru endurskinsmerki ADHD samtakanna, teiknuð af Hugleiki Dagssyni seld í fjáröflunarskini fyrir samtökin í októbermánuði ár hvert og er þetta ein helsta fjáröflun samtakanna. Endurskinsmerkin eru seld víða um land, bæði í heimahúsum, á torgum og við fjölda sölustaða Bónus og í vefverslun ADHD samtakanna. Endurskinsmerki kostar kr. 1.500,- og rennur allur ágóði af sölunni til ADHD samtakanna.

Nú er því rétti tíminn til að næla sér í endurskinsmerki fyrir fjölskylduna, enda skammdegið að skella á.

Athygli - já takk!