Fræðslufundur Selfossi - ADHD og sumarfrí

Við minnum á fræðslufundinn í kvöld klukkan 20:00. Sumarfríin eru framundan, dagskrá skólanna að tæmast og við tekur sól, sumar og taumlaus gleði....eða hvað? Þrátt fyrir að sumarfríin séu og eigi að vera tími fjölskyldusamveru og skemmtilegra viðburða fylgja sumrinu einnig nýjar og fjölbreyttar áskoranir. Rútínan riðlast og óvissa getur tekið völdin. Hjá börnum með ADHD og fullorðnum getur þessi tími valdið mikilli streitu og vanlíðan ef ekki tekst vel til. Á fundinum mun Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur fara yfir helstu áskoranir þessa mikilvæga tíma fjölskyldunnar, benda á hagnýt ráð til lausnar og leiða umræður.

Fundurinn verður haldinn í Vallaskóla, Sólvöllum 2, 800 Selfoss, þann 25. maí kl. 20:00. ATH! Gengið er inn af Engjavegi.

Skráðu þig á facebook viðburðinn og fáðu áminningu: https://fb.me/e/3DWWtwjYa

Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd