Reykjavíkurmaraþon lokaútkall

Snidri og Paula standa vaktina
Snidri og Paula standa vaktina
ADHD samtökin eru á FIT & RUN EXPO í Laugardalshöllinni í dag og á morgun. Sjáumst svo í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á laugardaginn. ADHD samtökin vilja þakka þeim frábæra hópi hlaupara sem þegar hafa skráð sig og ætla að hlaupa fyrir samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu. Samtökin eru bæði þakklát og djúpt snortin en Reykjavíkurmaraþonið er gríðarlega mikilvægur liður í fjáröflun samtakanna. Enn er hægt að slást í hópinn með því að skrá sig hér.  Þau sem hlaupa fyrir ADHD samtökin fá flottan hlaupabol frá samtökunum sem þakklætisvott. Þegar þú hefur skráð þig til leiks getur þú sent okkur póst á adhd@adhd.is og valið hvaða bol þú vilt - margar tegundir í boði.
Við hvetjum einnig öll til þess að styðja þennan flotta hóp, bæði í formi áheita og hvatningar á hlaupadeginum.
Með því að heita á hlauparana í Team ADHD getum við gert starfsemi ADHD samtakanna enn öflugri.
 
Koma svo!!!