ADHD og heimanám - opinn spjallfundur

Opinn spjallfundur um ADHD og heimanám.
Opinn spjallfundur um ADHD og heimanám.

ADHD og heimanám. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um ADHD og heimanám, miðvikudaginn 14. ágúst nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD.

Eftir sólríkt sumar eru skólarnir nú, hver á fætur öðrum að hefja starfsemi sína á ný og ekki seinna að vænna að hefja undirbúning námstarnarinnar sem framundan er. Enda er lykillinn að góðum árangri gott skipulag og öguð vinnubrögð strax frá fyrsta degi, ekki síst hjá þeim sem þurfa að taka námið fastari tökum en ella. Á fundinum mun Jóna Kristín Gunnarsdóttir, kennari og stjórnarkona í ADHD samtökunum fara yfir helstu áskoranir þessa mikilvæga tímabils, benda á hagnýt ráð sem virka og leiða umræður.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bækling samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru yfirleitt fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.