Er stjórnarskipið strand? Ályktun aðalfundar ADHD samtakanna fta.
Er stjórnarskipið strand?
Aðalfundur ADHD samtakanna kallar eftir skýrri, tímasettri og raunhæfri áætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um úrbætur í málefnum fólks með ADHD.
Valkyrjurnar tóku við alvarlegri stöðu: Langir biðlistar eftir greiningu, þeir lengstu innan heilbrigðiskerfisins, auk ítrekaðra ábendinga frá eftirlitsaðilum, þar á meðal Umboðsmanni barna og Umboðsmanni Alþingis, sem og fjölmargra opinberra skýrslna um stöðu málaflokksins. Þar ber sérstaklega að nefna Grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi, sem lögð var fram í upphafi síðasta árs. Þrátt fyrir þetta liggja enn ekki fyrir markvissar aðgerðir eða heildstæð stefna.
Nú, þegar verulegur hluti kjörtímabilsins er liðinn, hefur staðan versnað enn frekar. Um 5.000 einstaklingar bíða eftir ADHD-greiningu, þar af um 1.800 börn og tæplega 3.000 fullorðnir. Biðtími eftir greiningu og þjónustu er orðinn allt að 3-12 ár, sem er óásættanlegt með öllu og bendir til alvarlegs kerfislægs vanda. Staða barna er sérstaklega viðkvæm og þörf á aðgerðum tafarlaust á þeirra mikilvægasta vaxtarskeiði.
Aðalfundur ADHD samtakanna krefst aðgerða án tafar og framlagningar heildstæðrar áætlunar sem miðar að:
- Stytta biðtíma verulega
- Tryggja aðgengi að greiningu, meðferð og eftirfylgd
- Efla stuðning við börn, fjölskyldur og fullorðna með ADHD
Slík fjárfesting er ekki aðeins brýn heldur einnig samfélagslega hagkvæm. Hún mun skila sér í bættri lýðheilsu, aukinni virkni og auknum lífsgæðum þúsunda einstaklinga og fjölskyldna þeirra.
Samþykkt einróma á aðalfundi ADHD samtakann fta. 28. apríl 2026