Eyjar Minna tuð - meiri tenging!

Minna tuð - meiri tenging!
Að eiga barn eða ungling með ADHD getur verið krefjandi. Á þessum fræðslufundi ræðum við hvernig ADHD birtist, hvaða áhrif það hefur á hegðun, samskipti og líðan – og hvernig við getum skapað umhverfi sem talar í takt.
 
Við skoðum meðal annars:
🌿 Hvernig ADHD kemur fram í daglegu lífi
🧠 Aðferðir til að styðja við tilfinningastjórnun og sjálfstraust
🤝 Hvernig draga má úr krefjandi hegðun og setja skýr mörk
📋 Mikilvægi kerfis og sjónrænna áminninga – minna óþarfa tuð
💬 Leiðir til að efla samskipti og traust milli heimilis og skóla
 
💛 Það sem virkar fyrir börn og unglinga með ADHD – virkar fyrir flest alla. Við hvetjum því öll sem vilja skilja og styðja til að mæta.
Fyrirlesari er Jóna Kristín Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD-samtökunum og grunnskólakennari
 
Október er alþjóðlegur vitundarmánuður um ADHD
 
ADHD Eyjar í samstarfi við ADHD samtökin bjóða ykkur velkomin
Frítt inn og kaffi á könnunni
Fræðslufundur fyrir aðstandendur barna og unglinga
Mánudagur 13. október kl. 20:00
Í húsi Visku