Forsetafrúin Dorrit Moussaieff er með ADHD

mynd/getty
mynd/getty

Fréttin er tekin héðan af Vísi.is: http://visir.is/dorrit-med-adhd-og-lesblindu-/article/2012120329531

 Jón Hákon Halldórsson skrifar:

Dorrit Moussieff forsetafrú er með lesblindu og ADHD. Frá þessu greinir hún í samtali við Verzlunarskólablaðið. Ítarlegt og einlægt viðtal er við Dorrit í blaðinu. Þar er hún meðal annars spurð að því hvort hún hafi gengið í skóla sem barn.

„Ég var sett í skóla þegar ég var sex ára gömul. Kennarinn hringdi í föður minn og sagði honum að dóttir hans væri heimsk. Ekki væri nóg með að hún fylgdist ekki með sjálf heldur truflaði hún líka hina nemendurna. Ég er með alvarlega lesblindu og nýlega komst ég að því að ég er með ADHD í ofanálag. Á þeim tíma hélt ég að ég væri bara þannig einstaklingur. Faðir minn tók mig úr skólanum og ég byrjaði að vinna ung í versluninni hans í Ísrael. En ég hef enga formlega menntun," segir Dorrit í viðtalinu.

Þegar Dorrit er spurð að því hvaða breytingar hún vilji sjá á íslensku samfélagi næstu árin segist hún vilja sjá að fólk á Íslandi, þá sérstaklega börnin, minnki sykurneyslu um 90% hið minnsta. „Þegar ég kom fyrst til Íslands sá ég varla of feitt barn. það hefur breyst. Íslensk börn ættu að draga úr sykurneyslu: henni fylgir gríðarlegur kostnaður fyrir heilbrigðiskerfið og þá fjármuni mætti sannarlega nýta betur. Ég skil ekki hvers vegna íslensk ungmenni drekka þetta óheyrilega magn af gosdrykkjum þegar við eigum kost á besta vatni í heimi. Ég ætla að reyna að breyta þessu, tala við eins marga skóla og ég get. Ég veit að krakkarnir verða ekki kátir en þetta er þeim fyrir bestu," segir Dorrit. Hún vilji líka draga úr glæpum á landinu. Það sem skipti þó mestu máli sé heilsan.

Á vefsíðu ADHD samtakanna segir að athyglisbrestur og ofvirkni, oft kallað ADHD í daglegu tali, sé taugaþroskaröskun sem geti haft víðtæk áhrif á daglegt líf, nám og félagslega aðlögun. Athyglisbrestur og ofvirkni sé algerlega óháð greind. ADHD er alþjóðleg skammstöfun og stendur fyrir “Attention Deficit Hyperactivity Disorder” eða athyglisbrest og ofvirkni.