Fræðslufundur á Grundarfirði

Fræðsla fyrir aðstandendur

Hvað er ADHD og hvernig birtist það. Sífellt fleiri fá ADHD greiningu og skilningur er sterkasta vopnið okkar til að bæta líðan og sjálfsmynd þeirra. Jóna Kristín Gunnarasdóttir grunnskólakennari, kennslu- og hegðunarráðgjafi ræðir um hvernig við getum stutt við og kennt okkur, börnunum, eða nánum fjölskyldumeðlimum að finna sýna styrkleika og byggja upp sterka sjálfsmynd.

Samskipti heimilis og skóla, heimanám og skipulag eftir að heim er komið eru þættir sem tæpt er á. Þessi fræðsla er fyrir alla og mikilvægt að muna að oft eru vinir barna okkar með ADHD og við því partur af umhverfi þeirra. Fundurinn fer fram miðvikudaginn 19. október, klukkan 18:30 í húsakynnum grunnskólann á Grundarfirði.

Mætum og bjóðum vinum með og byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Íslandi

Skráðu þig á viðburðinn á Facebook og fáðu áminningu: https://www.facebook.com/events/3226977917514103?ref=newsfeed

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt