Fræðslufundur á Hvanneyri

Fræðsla fyrir aðstandendur og fólk sem umgengst og vinnur með börnum með ADHD.

Hvað er ADHD og hvernig birtist það. Sífellt fleiri fá ADHD greiningu og skilningur er sterkasta vopnið okkar til að bæta líðan og sjálfsmynd þeirra. Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari, kennslu- og hegðunarráðgjafi ræðir um hvernig við getum stutt við og kennt okkur, börnunum, eða nánum fjölskyldumeðlimum að finna sína styrkleika og byggja upp sterka sjálfsmynd.

Samskipti heimilis og skóla, heimanám og skipulag eftir að heim er komið eru þættir sem tæpt er á. Þessi fræðsla er fyrir alla og mikilvægt að muna að oft eru vinir barna okkar með ADHD og við því partur af umhverfi þeirra. Fundurinn fer fram mánudaginn 24. október, klukkan 17:30 í húsakynnum Grunnskólans á Hvanneyri.

Mætum og bjóðum vinum með og byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Íslandi

Skráðu þig á viðburðinn á Facebook og fáðu áminningu: https://fb.me/e/2cmSnL8DA

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt