Fræðslufundur í Þorlákshöfn um ADHD og lyf

Fræðslufundur í Þorlákshöfn um ADHD og lyf 

ADHD samtökin halda fræðslufund um ADHD og lyf, fimmtudaginn 20. október kl 20:00-21:00. Fundurinn er öllum opinn og fer fram í Grunnskólanum í Þorlákshöfn, Egilsgötu 35.

Mikil umræða hefur verið um notkun lyfja og ADHD á liðnum misserum og víða má greina fordóma og vanþekkingu um þessi mál. Á fundinum verður farið yfir virkni helstu lyfja sem notuð eru vegna ADHD, rætt um mögulegar aukaverkanir og reynt að svara helstu spurningum sem brenna á vörum fundargesta. 

Umsjón með fundinum hefur Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna og Hrefna Guðmundsdóttir.

Mætum og bjóðum vinum með og byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Íslandi

Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundanna og fáðu áminningu: https://www.facebook.com/events/1299503754186671/?ref=newsfeed

Gerast félagsmaður. Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.