Fræðslufundur fyrir fullorðna með ADHD í kvöld kl. 20

Félagsleg samskipti fullorðinna með ADHD
Fræðslufundur Háaleitisbraut 13, 4. hæð kl. 20 í kvöld 30. apríl 2025
Á þessum fræðslufundi fer Elín Hoe Hinriksdóttir sérfræðingur hjá ADHD samtökunum yfir félagslega samskipti fullorðinna einstaklinga með ADHD.
Veitt verður stutt fræðsla um ADHD röskunina og birtingarmyndir hennar. Félagsleg samskipti snúast um samskipti við aðra bæði vini, fjölskyldu og vinnufélaga.
Á því sviði standa einstaklingar með ADHD oft frammi fyrir talsverðum áskorunum.
Farið verður yfir hvernig hægt er að takast á við þessar áskoranir, hvaða styrkleika hægt er að nýta sér og kynnt ýmis bjargráð.
Veitt verður svigrúm til umræðna.
 

Öll velkomin á staðinn meðan húsrúm leyfir en streymi er einungis aðgengilegt félagsfólki á ADHD í beinni á facebook.

Ganga í ADHD samtökin