Fræðslufundur Hveragerði- Um víðan völl með ADHD


 Fræðslu- og spjallfundur- Um víðan völl með ADHD

Þann 22. nóvember kl.20:00 verður fræðslu - og spjallfundur í húsnæði Rauða krossins Mánamörk 1, Hveragrerði.

Á þessum fundi verður farið um víðan völl með ýmis málefni sem tengjast ADHD.
Dr. Drífa Guðmundsdóttir sálfræðingur, fer yfir birtingamyndir, sem og styrkleika þeirra sem hafa ADHD og svarar fyrirspurnum gesta.

Frábært tækifæri fyrir þá sem þurfa svör við ýmsu sem tengist ADHD.

Hlekkur að gerast félagsmaður samtakanna: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Öll velkomin!