Fræðslufundur Suðurnes - Sumarfrí og ADHD

Fræðslufundur, ADHD og sumarfrí.

Sumarfríin eru framundan, dagskrá skólanna að tæmast og við tekur sól sumar og taumlaus gleði... eða hvað? Þó sumarfríin séu og eigi að vera tími fjölskyldusamveru og fjölbreyttra skemmtilegra viðburða, fylgja sumrinu einnig nýjar og fjölbreyttar áskoranir, þar sem rútínan riðlast og við tekur óvissa. Hjá börnum með ADHD og fullorðnum, getur þessi tími valdið mikilli streitu og vanlíðan ef ekki tekst vel til. Á fundinum mun Dr. Drífa Björk Guðmundsóttir, sálfræðingur fara yfir helstu áskoranir þessa mikilvæga tíma fjölskyldunnar, benda á hagnýt ráð til lausnar og leiða umræður. 

Fundurinn verður haldinn í Akurskóla, Tjarnabraut 5, 260 Reykjanesbæ miðvikudaginn 10. maí kl. 20:00. Gengið er inn um aðalinngang skólans. 

Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Hér er hlekkur ef þú vilt áminningu á facebook: https://fb.me/e/Sb9Up5YR

Verið velkomin á fræðslufundinn!