Staðnám/fjarnám: Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna 13-18 ára með ADHD

SKRÁNING STENDUR YFIR á hið sívinsæla fræðslunámskeið fyrir foreldra 13-18 ára barna með ADHD verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík laugardagana 17. apríl og 24. apríl 2021 (sjá skipulag hér fyrir neðan).

  • Námskeiðið er bæði sent út beint í gegnum fjarfundabúnað sem og haldið í raunheimum. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað ADHD er og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef nánir aðstandendur geta tekið þátt í námskeiðinu. Þannig verður fjölskylduheildin enn sterkari. 

  • Námskeiðið verður haldið í húsakynnum ADHD samtakanna í Reykjavík að Háaleitisbraut 13, 4. hæð báða dagana.

Skipulag og dagskrá:

  • Fyrri laugardagur - 17. apríl 2021:

10:00 -11:30      
Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræingur. Unglingar með ADHD. Stutt yfirlit um einkenni ADHD, hvað breytist á unglingsárunum, mótþrói og erfið hegðun.
11:30 - 12:00     
Matarhlé
12:00 -13:30      

Haukur Örvar Pálmasson, sálfræðingur. Nám og skólaganga unglinga með ADHD í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. Áhrif ADHD á námsgetu og helstu erfiðleikar.

13:30 - 14:00     
Samantekt og spjall.

  • Seinni laugardagur - 24. apríl 2021:

10:00 - 11:30     
Þórdís Bragadóttir sálfræðingur. Uppeldi unglinga - hvað er til ráða? Hvernig samskipti í fjölskyldu geta þróast á neikvæðan hátt og hvernig hægt er að brjóta það upp, reglur og samningar.
11:30 - 12:00     
Matarhlé

12:00 - 13:30     

Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur. Líðan unglinga með ADHD.. Sjálfsmynd, kvíði og depurð hjá unglingum með ADHD.

13:30 - 14:00     
Samantekt og spjall

  • Röð fyrirlestra getur breyst, en hver fyrirlestur er í 45 mín. og síðan umræður og fyrirspurnir í 30 mín.
  • Hægt er að taka þátt í námskeiðinu í gegnum fjarfundarbúnað - Því er ekkert til fyrirstöðu að taka þátt hvar á landinu sem þú býrð.
  • Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

NÁMSKEIÐSVERÐ:

  • Verð fyrir einstakling 28.000 kr. SKRÁNING HÉR
  • Verð fyrir einstakling sem er félagsmaður ADHD 19.000 kr. SKRÁNING HÉR
  • Verð fyrir tvo einstaklinga 46.000 kr. SKRÁNING HÉR
  • Verð fyrir tvo einstaklinga þar sem annar aðili er félagsmaður ADHD 28.000 kr. SKRÁNING HÉR