Fundur á Húsavík og Akureyri á morgun þriðjudaginn 4. september 2012

 

 

ADHD samtökin verða á Húsavík þriðjudaginn 4. september 2012

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Spjallfundur fyrir foreldra

 

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Kynningafundur ADHD samtakanna verður haldinn á Húsavík þriðjudaginn 4. september kl. 14:30 í sal Borgarhólsskóla í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD.

 

Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin?

Björk Þórarinsdóttir formaður og Elín Hoe Hinriksdóttir varaformaður stjórnar ADHD  samtakanna kynna samtökin.

Dagskrá

  1. Hvað er ADHD?

Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar

  1. ADHD á mismunandi aldursskeiðum.

Börn, unglingar, fullorðnir.

  1. Greining og meðferðarleiðir.
  2. Skóli, nám og teymisvinna.
  3. Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð.
  4. Framtíðarhorfur.
  5. Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?
  6. Helstu verkefni samtakanna.

Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla

  1. Fyrirspurnir

 

Spjallfundur fyrir foreldra

Klukkan 17:00 á þriðjudagseftirmiðdeginu 4. september í sal Borgarhólsskóla verður spjallfundur sem Björk og Elín stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta.

 

Á Akureyri Kl. 21:00 í sal Ökuskólans á 2. hæð, Sunnuhlíð 12 gengið inn að vestan.  Þá verður spjallfundur fyrir foreldra barna með ADHD, eru foreldrar unglinga og ungmenna einnig hjartanlega velkomnir. Elín og Björk frá ADHD samtökunum í Reykjavík munu aðstoða við að leiða fundinn.

Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert

 

Nánari upplýsingar hjá Ellen Calmon framkvæmdastjóra ADHD samtakanna í síma 6947864