ADHD samtökin í samvinnu við Sjónarhól ráðgjafarmiðstöð halda áfram með foreldrahóp fyrir foreldra og aðstandendur barna með ADHD, Saman í gegnum ADHD.
Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi mun stýra hópnum.
Þarna er vettvangur þar sem foreldrar geta skipst á ráðum, fengið svör við spurningum og vangaveltum, deilt reynslu sinni og sigrum ásamt því að finna tengingu við aðra foreldra í svipuðum sporum.
Öll velkomin.
Hópurinn hittist fyrsta mánudag hvers mánaðar kl. 20:00 að Háaleitisbraut 13, 4. hæð
Öll velkomin í kvöld 5. janúar kl. 20