Fyrsti spjallfundur haustsins í kvöld

Spjallfundir hefjast nú að nýju og verður sá fyrsti í kvöld, miðvikudaginn 13. september 2017 kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður foreldrum og forráðamönnum. Yfirskrift fundarins er "Svefnvandi barna og morgunrútína" og er umsjónarmaður Drífa Björk Guðmundsdóttir.

Allir eru velkomnir, heitt á könnunni og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.