Gauarflokkur í Vatnaskógi - Nokkur pláss laus

Enn eru nokkur pláss laus í Gauraflokki sumarbúðanna í Vatnaskógi dagana 8. til 12. júní. Flokkurinn er ætlaður strákum á aldrinum 10-12 ára með ADHD og skyldar raskanir.

Skógarmenn KFUM í samstarfi við ADHD samtökin bjóða uppá sumarbúðir fyrir 10-12 ára drengi með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.

Markmið Gauraflokks
Markmiðið með Gauraflokknum er að bjóða þennan hóp drengja velkominn í sumarbúðir í Vatnaskógi þar sem þörfum þeirra verður mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt.

Aðstaðan í Vatnaskógi
Vatnaskógur er frábær staður fyrir kraftmikla og vaska drengi. Þar eru bátar, íþróttahús, fótboltavellir, frjálsíþróttasvæði, frábærar gönguleiðir, baðströnd, ævintýralegur skógur, bókasafn ofl. Dagskráin í Vatnaskógi er fjölbreytt og samanstendur af frjálsum dagskrártilboðum, kvöldvökum, kristinni fræðslu, söng, mikilli útiveru og reglulegum matartímum. Dagsskipulag Vatnaskógar er afar heppilegt fyrir drengi með ADHD vegna þess að ramminn er skýr, þeir hafa sitt sæti við sitt borð með sinn foringja. Hvert borð er í sama svefnsal og herbergjum. Matartímar eru mjög reglulegir. Fjölmörg tilboð um viðfangsefni sem mæta ólíkum áhugasviðum. Mun fleiri starfsmenn verða í þessum flokk en í hefðbundnum flokkum og því auðveldara að mæta hverjum og einum á hans forsendum.

 

Skráningarform fyrir Gauraflokk