Gauraflokkur í Vatnaskógi 4.-9.júní, enn eru laus pláss!

Gauraflokkur í Vatnaskógi eru sumarbúðir fyrir stráka á aldrinum 10-12 ára með ADHD eða skyldar raskanir.

Flokkurinn starfar 4. júní til 9. júní. Sem fyrr verða færri strákar og mun fleira starfsfólk en í hefðbundnum flokkum, þá er helmingur starfsfólksins með sérmenntun eða reynslu af vinnu með börn og unginga. Dagsskipulagið er sniðið að þörfum barna með ADHD. Á staðnum eru bátar, íþróttahús, fótboltavellir, frjálsíþróttasvæði, frábærar gönguleiðir, baðströnd, ævintýralegur skógur, bókasafn ofl.

 

Hægt er að sækja um þátttöku hér

 

Hægt er að hafa samband við Ásgeir Pétursson, forstöðumann flokksins,  í síma 6954526.