ADHD samtökin héldu tvö námskeið fyrir Reykjavíkurborg um leikskólann og ADHD
Vel yfir 100 leikskólakennarar sóttu námskeið um leikskólann og ADHD sem ADHD samtökin héldu fyrir Reykjavíkurborg.
Það er mikilvægt að strax í leikskóla sé börnum mætt með skilningi og umburðarlyndi. Börn með ADHD eða grun um ADHD geta verið krefjandi og því mikilvægt að starfsfólk leikskóla hafi og geti nýtt sér þau verkfæri sem reynast vel. Þannig stuðlum við að jákvæðari skólagöngu og sterkari sjálfsmynd svo ekki sé talað um bætt vinnuumhverfi.