FULLBÓKAÐ - GPS-námskeið fyrir drengi hefst í janúar 2015

ADHD samtökin bjóða í janúar upp á GPS-námskeið, sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir drengi, 13-16 ára, GPS sem stendur fyrir Gagnleg, persónuleg stjórntæki. Gert er ráð fyrir 10 þátttakendum á hvert námskeið.

GPS námskeiðið fyrir drengi hefst 17. janúar 2015.  FULLBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ.

Námskeiðsgjald er kr. 21.000,-

SKRÁNING HÉR

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD
  • Lærðu að þekkja þitt ADHD
  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir
  • Félagsfærni
  • Kynvitund
  • Lífsstíll
  • Áhættuhegðun
  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara.

Kynning verður fyrir foreldra í upphafi námskeiðs, fimmtudaginn 15. janúar 2015 og í lok námskeiðs, þriðjudaginn 3. mars 2015 verða foreldrar aftur boðaðir á fund með umsjónarmönnum.

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir drengi 13-16 ára hefst laugardaginn 17. janúar 2015 og lýkur laugardaginn 28. febrúar 2015.

 
1. tími   Laugardagur 17. janúar   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Mánudagur 19. janúar   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Mánudagur 26. janúar   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Mánudagur 2. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Mánudagur 9. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Mánudagur 16 febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Mánudagur 23. febrúar   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 28. febrúar   kl. 11:00 - 15:00  



SKRÁNING HÉR

Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna