Fullbókað á GPS námskeið fyrir drengi - Tekið við skráningum á biðlista

ATHUGIÐ - FULLBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ SEM HEFST 23. ÁGÚST

Tekið er á móti skráningum á biðlista

ADHD samtökin bjóða líkt og síðastliðið vor, upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga, 13-16 ára, GPS sem stendur fyrir Gagnleg, persónuleg stjórntæki. Námskeiðið er kynjaskipt, eitt námskeið fyrir drengi og annað fyrir stúlkur. Gert er ráð fyrir 8 þátttakendum á hvert námskeið.

GPS námskeiðið fyrir drengi hefst 23. ágúst og er skráning hafin.

Námskeiðsgjald er kr. 21.000,-
Velferðarsjóður barna styrkir þetta námskeið með niðurgreiðslu á námskeiðsgjöldum

Hver þátttakandi greiðir því aðeins kr. 8.500,- fyrir námskeiðið.

SKRÁNING HÉR

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD
  • Lærðu að þekkja þitt ADHD
  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir
  • Félagsfærni
  • Kynvitund
  • Lífsstíll
  • Áhættuhegðun
  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara.

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir drengi 13-16 ára hefst laugardaginn 23. ágúst 2014 og lýkur laugardaginn 4. október 2014.

 
1. tími   Laugardagur 23. ágúst   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Mánudagur 25. ágúst   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Mánudagur 1. september   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Mánudagur 8. september   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Mánudagur 15. september   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Mánudagur 22 september   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Mánudagur 29. september   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 4. október   kl. 11:00 - 15:00  



SKRÁNING HÉR

Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna