GPS-námskeið fyrir stelpur - Skráning hafin


Líkt og fyrri ár, bjóða ADHD samtökin upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga. Námskeið fyrir stelpur í 8. til 10. bekk hefst laugardaginn 6. febrúar 2016 en foreldrakynning verður föstudaginn 5. febrúar. 

Námskeiðið er haldið í sal ADHD að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

 

Námskeiðsgjald er kr. 25.000,-

SKRÁNING HÉR

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD

  • Lærðu að þekkja þitt ADHD

  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir

  • Félagsfærni

  • Kynvitund

  • Lífsstíll

  • Áhættuhegðun

  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir stúlkur í 8. - 10. bekk hefst með foreldrakynningu föstudaginn 5. febrúar 2016 og lýkur laugardaginn 19. mars 2016.

 
Foreldrakynning       Föstudagur 5. febrúar       kl. 19:00 - 20:00  
1. tími   Laugardagur 6. febrúar   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Fimmtudagur 11. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Fimmtudagur 18. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Fimmtudagur 25. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Fimmtudagur 3. mars   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Fimmtudagur 10. mars   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Fimmtudagur 17. mars   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 19. mars   kl. 18:00 - 22:00  
Foreldrafundur   Þriðjudagur 22. mars   kl. 18:00 - 19:00  

 

SKRÁNING HÉR



Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna