GPS-námskeið fyrir stráka í mars - Skráning hafin

ADHD samtökin bjóða upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stráka í 8. til 10. bekk. Námskeiðið hefst laugardaginn 11. mars 2017 en foreldrakynning verður fimmtudaginn 9. mars. 

Námskeiðið er haldið í sal ADHD að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

SKRÁNING HÉR

Námskeiðsgjald er kr. 27.500,-

 

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD

  • Lærðu að þekkja þitt ADHD

  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir

  • Félagsfærni

  • Kynvitund

  • Lífsstíll

  • Áhættuhegðun

  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir stráka í 8. - 10. bekk hefst með foreldrakynningu fimmtudaginn 9. mars 2017 og lýkur laugardaginn 8. apríl 2017.

 
Foreldrakynning       Fimmtudagur 9. mars       kl. 20:00 - 21:00
1. tími   Laugardagur 11 mars   kl. 10:00 - 15:00  
2. tími   Miðvikudagur 15. mars   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Mánudagur 20. mars   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Miðvikudagur 22. mars   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Mánudagur 27. mars   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Miðvikudagur 29. mars   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Miðvikudagur 5. apríl   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 8. apríl   kl. 10:00 - 15:00  
Foreldrafundur   Mánudagur 10. apríl   kl. 20:00 - 21:00  

 

 

SKRÁNING HÉR



Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna