GPS-námskeið fyrir stráka - Skráning hafin


ADHD samtökin bjóða upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stráka í 8. til 10. bekk.

Námskeiðið hefst laugardaginn 12. mars 2016.

Foreldrakynning verður fimmtudaginn 10. mars. 

Námskeiðið er haldið í sal ADHD að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

 

Námskeiðsgjald er kr. 25.000,-

 

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD

  • Lærðu að þekkja þitt ADHD

  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir

  • Félagsfærni

  • Kynvitund

  • Lífsstíll

  • Áhættuhegðun

  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir stráka í 8. - 10. bekk hefst með foreldrakynningu fimmtudaginn 10. mars 2016 og lýkur laugardaginn 7. maí 2016.

 
Foreldrakynning       Fimmtudagur 10. mars       kl. 20:00 - 21:00  
1. tími   Laugardagur 12. mars   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Miðvikudagur 16. mars   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Miðvikudagur 30. mars   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Miðvikudagur 6. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Miðvikudagur 13. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Miðvikudagur 20. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Fimmtudagur 28. apríl   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 7. maí   kl. 11:00 - 15:00  
Foreldrafundur   Þriðjudagur 10. maí   kl. 20:00 - 21:00  

 

 



Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna