GPS námskeið fyrir stráka - Skráningu lokið

ADHD samtökin bjóða upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stráka í 8. til 10. bekk. Námskeiðið hefst laugardaginn 22. október 2016 en foreldrakynning verður fimmtudaginn 20. október. 

 

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD

  • Lærðu að þekkja þitt ADHD

  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir

  • Félagsfærni

  • Kynvitund

  • Lífsstíll

  • Áhættuhegðun

  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir stráka í 8. - 10. bekk hefst með foreldrakynningu fimmtudaginn 20. október 2016 og lýkur laugardaginn 5. desember 2016.

 
Foreldrakynning       Fimmtudagur 20. október       kl. 20:00 - 21:00  
1. tími   Laugardagur 22. október   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Fimmtudagur 27. október   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Fimmtudagur 3. nóvember   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Fimmtudagur 10. nóvember   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Fimmtudagur 17. nóvember   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Fimmtudagur 24. nóvember   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Fimmtudagur 1. desember   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 3. desember   kl. 18:00 - 22:00  
Foreldrafundur   Mánudagur 5. desember   kl. 20:00 - 21:00  

 

Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna