Fullbókað á GPS námskeið fyrir stúlkur - Tekið við skráningu á biðlista

ATHUGIÐ - FULLBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ SEM HEFST 11. OKTÓBER

Tekið er á móti skráningum á biðlista

ADHD samtökin bjóða líkt og síðastliðið vor, upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga, 13-16 ára, GPS sem stendur fyrir Gagnleg, persónuleg stjórntæki. Námskeiðið er kynjaskipt, eitt námskeið fyrir drengi og annað fyrir stúlkur. Gert er ráð fyrir 8 þátttakendum á hvert námskeið.

GPS námskeiðið fyrir stúlkur hefst 11. október og er skráning hafin.

Námskeiðsgjald er kr. 21.000,-
Velferðarsjóður barna styrkir þetta námskeið með niðurgreiðslu á námskeiðsgjöldum

Hver þátttakandi greiðir því aðeins kr. 8.500,- fyrir námskeiðið.

SKRÁNING HÉR

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD
  • Lærðu að þekkja þitt ADHD
  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir
  • Félagsfærni
  • Kynvitund
  • Lífsstíll
  • Áhættuhegðun
  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara.

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir stúlkur 13-16 ára hefst laugardaginn 11. október 2014 og lýkur laugardaginn 22. nóvember 2014.

 
1. tími   Laugardagur 11. október   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Mánudagur 13. október   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Mánudagur 20. október   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Mánudagur 27. október   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Mánudagur 3. nóvember   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Mánudagur 10. nóvember   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Mánudagur 17. nóvember   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 22 nóvember   kl. 11:00 - 15:00  



SKRÁNING HÉR

Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna