GPS - Sjálfsstyrking fyrir unglingsdrengi

ADHD samtökin bjóða nú upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga, 13-16 ára, GPS sem stendur fyrir Gagnleg, persónuleg stjórntæki. Námskeiðið er kynjaskipt, eitt námskeið fyrir drengi og stúlkur að vori og annað fyrir hvort kyn að hausti. Gert er ráð fyrir 10 þátttakendum á hvert námskeið.

Fyrsta námskeiðið fyrir drengi hefst 18. mars og er skráning hafin. 

Námskeiðsgjald er kr. 21.000,-
Velferðarsjóður barna styrkir þetta námskeið með niðurgreiðslu á námskeiðsgjöldum 

Hver þátttakandi greiðir því aðeins kr. 8.500,- fyrir námskeiðið.

SKRÁNING HÉR

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD
  • Lærðu að þekkja þitt ADHD
  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir
  • Félagsfærni
  • Kynvitund
  • Lífsstíll
  • Áhættuhegðun
  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir drengi 13-16 ára hefst með foreldrakynningu þriðjudaginn 18. mars 2014 og lýkur laugardaginn 3. maí 2014.

 
Foreldrakynning       Þriðjudagur 18. mars       kl. 20:30 - 22:00  
1. tími   Laugardagur 22. mars   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Miðvikudagur 26. mars   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Mánudagur 31. mars   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Þriðjudagur 8. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Þriðjudagur 15. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Þriðjudagur 22. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Þriðjudagur 29. apríl   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 3. maí   kl. 11:00 - 15:00  



SKRÁNING HÉR

Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna