GPS - Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stelpur

ADHD samtökin bjóða upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stelpur í 8. til 10. bekk. Námskeiðið hefst laugardaginn 29. ágúst 2015 en foreldrakynning verður fimmtudaginn 27. ágúst. 

Námskeiðsgjald er kr. 23.500,-

Skráningu er lokið. Hægt er að senda óskir um skráningu á biðlista á adhd@adhd.is

SKRÁNING HÉR

 

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD

  • Lærðu að þekkja þitt ADHD

  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir

  • Félagsfærni

  • Kynvitund

  • Lífsstíll

  • Áhættuhegðun

  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir stúlkur í 8. - 10. bekk hefst með foreldrakynningu fimmtudaginn 27. ágúst 2015 og lýkur föstudaginn 2. október 2015.

 
Foreldrakynning       Fimmtudagur 27. ágúst       kl. 20:00 - 21:00  
1. tími   Laugardagur 29. ágúst   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Fimmtudagur 3. september   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Mánudagur 7. september   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Fimmtudagur 10. september   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Fimmtudagur 17. september   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Mánudagur 21. september   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Fimmtudagur 1. október   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Föstudagur 2. október   kl. 18:00 - 22:00  
Foreldrafundur   Fimmtudagur 8. október   kl. 18:00 - 19:00  




Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna