GPS - Sjálsstyrkingarnámskeið fyrir 13-16 ára stúlkur með ADHD

Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stúlkur með ADHD
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stúlkur með ADHD

Skráning er hafin á GPS námskeið ADHD samtakanna fyrir stúlkur með ADHD, á aldrinum 13-16 ára (8. til 10. bekk). GPS stendur fyrir "Gagnleg, persónuleg stjórntæki" og um er að ræða praktískt sjálfsstyrkingarnámskeið, sérsniðið að þessum hópi. Aðeins er gert ráð fyrir 10 stúlkum á námskeiðinu og verður vel hlúð að hverri og einni.

Námskeiðið hefst laugardaginn 2. febrúar nk. en foreldrakynning verður miðvikudaginn 30. janúar. Námskeiðið er haldið í sal ADHD að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

Námskeiðsgjald er kr. 34.500,- en félagsmenn ADHD samtakanna fá kr. 5.000,- endurgreiddar (ef einhver á heimilinu er í samtökunum). 

Aðeins 10 pláss - skráning opin!

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD

  • Lærðu að þekkja þitt ADHD

  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir

  • Félagsfærni

  • Kynvitund

  • Lífsstíll

  • Áhættuhegðun

  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með námskeiðinu, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir 13-16 ára stúlkur hefst með foreldrakynningu fimmtudaginn 30. janúar nk. og lýkur þriðjudaginn 26. mars 2019.

 
Foreldrakynning       Miðvikudagur 30. janúar       kl. 20:00 - 21:00  
1. tími   Laugardagur 2. febrúar   kl. 10:00 - 15:00  
2. tími   Miðvikudagur 6. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Miðvikudagur 13. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Miðvikudagur 20. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Miðvikudagur 27. febrúar   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Miðvikudagur 6. mars   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Miðvikudagur 13. mars   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 23. mars   kl. 10:00 - 15:00  
Foreldrafundur   Þriðjudagur 26. mars   kl. 20:00 - 21:00  

 

 Skráning er opin hér - aðeins 10 sæti laus!