Heidi Strand, f. 6.01.1953, d. 18.01.2026
Heidi Strand, sem ásamt eiginmanni sínum og fleirum kom að stofnun ADHD samtakanna, er fallin frá. Með eftirfarandi orðum vilja samtökin heiðra minningu henna og um leið votta eftirlifandi eiginmanni og fjölskyldu okkar dýpstu samúð.
Á vordögum 1987, eftir ráðstefnu um hjálpartæki fatlaðra í Borgarleikhúsinu, kviknaði hugmynd hjá hjónunum Heidi og Matthíasi Kristiansen um að vekja athygli á röskun sem fáir þekktu og enn færri ræddu opinberlega. Fljótlega myndaðist samheldinn hópur foreldra, þar á meðal svokallaður mömmuhópur, sem fundaði meðal annars á heimili þeirra í Bólstaðarhlíðinni. Í kjölfarið dróst Matthías smám saman inn í starfið og varð virkur þátttakandi í félagsskapnum.
Veturinn var nýttur til undirbúnings og skipulagningar með það að markmiði að stofna félag sem gæti veitt foreldrum stuðning og rödd í samfélaginu. Ákveðið var að halda opinn undirbúningsfund í lok vetrar 1988. Til fundarins var boðið bæði fagaðilum og fulltrúum Þroskahjálpar og Öryrkjabandalagsins, og með styrk frá Þroskahjálp var leigður salur á Hótel Sögu sem rúmaði 35 manns. Enginn átti von á mikilli mætingu.
Raunin varð þó önnur. Um 130 manns mættu á fundinn og sýndu þar með glöggt hversu brýn þörfin var fyrir slíkt félag og á þessum eftirminnilega fundi bundust menn fastmælum um að hrinda hugmyndinni í framkvæmd.
Í framhaldinu var boðað til formlegs stofnfundar Foreldrafélags misþroska barna, sem haldinn var í hátíðarsal Kennaraháskólans 7. apríl 1988. Þar komu saman 90 stofnfélagar, sameinaðir í þeirri trú að samstaða, fræðsla og skilningur gætu breytt lífi barna og fjölskyldna þeirra til hins betra. Þetta var upphaf baráttu sem átti eftir að skilja eftir sig djúp og varanleg spor.
ADHD samtökin eiga Heidi og Matthíasi margt að þakka. Ekki einungis voru þau frumkvöðlar í að berjast fyrir viðurkenningu og skilningi á þörfum barna með ADHD heldur lögðu þau grunn að því starfi sem ADHD samtökin vinna í dag.
Fyrir hönd ADHD samtakanna,
Vilhjálmur Hjálmarsson. formaður