Hlaupa eða kaupa - TEAM ADHD hlaupabolirnir fáanlegir

TEAM ADHD hlaupabolirnir
TEAM ADHD hlaupabolirnir

Hlaupabolir ADHD samtakanna eru nú til sölu í vefverslun samtakanna í takmörkuðu magni, en allir sem hlaupa fyrir ADHD samtökin í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, 24. ágúst 2019, geta einnig valið sér einn TEAM ADHD hlaupabol, endurgjaldslaust, sem þakklætisvott fyrir stuðninginn.

Hægt er að kaupa bolina hér en þeir sem vilja skrá sig í TEAM ADHD í Reykjavíkurmaraþoninu geta gert það hér.

Þessir glæsilegu póló-bolir, eru framleiddir af 66 Norður og hafa tvennskonar merkingar. Báðir bolirnir eru merktir með TEAM ADHD á bakinu, en að framan er hægt að velja á milli ADHD SNILLINGAR (í AC/DC stíl) eða lógó ADHD samtakanna - sjá myndir hér að neðan. 

Báða bolina er hægt að fá í eftirfarandi stærðum: 2XL,XL, L, M og S og er hægt að máta og sækja bolina á skrifstofu samtakanna, Háaleitisbraut 13, 3. hæð, eða senda þá hvert á lands sem er.  Stærðir eru ákveðnar í gegnum póstsamskipti eftir kaup eða eftir mátun á skrifstofu. Sendingargjald að upphæð kr. 1.000,- legst á allar sendingar.

Nánari upplýsingar má fá í síma 5811110, eða með því að skrifa póst á adhd@adhd.is