Hlaupið til góðs fyrir ADHD samtökin

#TeamADHD
#TeamADHD

Í dag er síðasti séns til þess að skrá sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka með 20% afslætti af skráningargjaldi.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 21. ágúst 2021 og ljóst að Covid19 fær ekki að setja strik í reikninginn að þessu sinni. Áheitasöfnun hlauparanna er í ár líkt og áður gríðarlega mikilvægur líður í fjáröflun samtakanna. ADHD samtökin hafa í gengum tíðina notið góðs af frábærum hópi fólks sem hefur hlaupið undir nafni samtakanna og verið hluti af #TeamADHD og við fögnum hverjum nýjum þátttakanda.

Allir sem hlaupa fyrir ADHD samtökin fá flottann hlaupabol frá samtökunum sem þakklætisvott. Þeir af yngri kynslóðinni geta í staðinn valið um að taka frekar eitt af hinum gríðarlega vinsælu Popit einbeitingarleikföngum. Þegar þú hefur skráð þig í Team ADHD á hlaupastyrkur.is getur þú sent okkur póst á adhd@adhd.is og valið hvorn bolinn sem er.

Í meira en 30 ár hafa ADHD samtökin unnið markvisst að því að einstaklingar með ADHD og skyldar raskanir og fjölskyldur þeirra, mæti skilningi í samfélaginu, fái stuðning, styrk og þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun, auknum möguleikum í námi, leik og starfi og almennt bættum lífsgæðum.

Þjónusta ADHD samtakanna er til reiðu fyrir alla landsmenn en í samtökunum eru hátt í 3500 félagsmenn. Aðildin gildir fyrir alla fjölskyldu viðkomandi, enda eru oft margir í sömu fjölskyldu með ADHD.

Líklega glíma allt að 20.000 einstaklingar við ADHD á Íslandi í dag - 8.000 börn og 12.000 fullorðnir, mjög margir sem ekki hafa fengið greiningu eða úrræði við hæfi sem gætu stórbætt lífsægði og dregið verulega úr ýmsum samfélagslegum kostnaði; brottfalli úr skólum, vímuefnanotkun, einelti, örorku, lyfjanotkun og ýmiskonar heilbrigðisvanda.

ADHD samtökin veita félagsmönnum, öllum almenningi, opinberum stofnunum og fagfólki ýmiskonar ráðgjöf, fræðsluefni og upplýsingar, öllum að kostnaðarlausu og standa jafnframt fyrir öflugu námskeiðahaldi, fræðslufundum og útgáfustarfsemi.

Með þínum stuðningi viljum við og getum við, eflt þetta starf enn frekar - öllum til heilla.

Við skorum því á velunnara félagsins, félagsmenn sem aðra, að hlaupa fyrir ADHD samtökin og/eða heita á þá sem hlaupa fyrir samtökin og með þeim hætti, hvetja okkar vösku sveit til dáða og efla starsemi samtakanna. Hér má sjá hverjir hlaupa fyrir ADHD samtökin í ár - TEAM ADHD

Allir með - #teamADHD #snillingar #takkADHD

Hægt er að fræðast og fylgjast með starfi ADHD samtakanna á heimasíðunni, á Facebook og Instagram.

Vertu með í #TeamADHD

Takk fyrir stuðninginn!