Hlaupum til góðs: Opnað fyrir áheitasöfnun í Reykjavíkurmaraþoni

ADHD samtökin eru eitt 74 góðgerðarfélaga sem þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka geta hlaupið fyrir í ágúst næstkomandi og um leið vakið athygli á málstaðnum. Þrítugasta Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn 24. ágúst. Áheitasöfnun fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is.

Einfalt að safna
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en ADHD samtökin eru eitt þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.

Hægt er að deila söfnunarsíðu hlaupara á samfélagsmiðlum og hvetja þannig vini og vandamenn til að heita á sig. Hver sem er getur farið inná hlaupastyrkur.is og heitið á skráða hlaupara.

Hægt er að greiða áheit með kreditkorti, millifærslu eða með því að senda sms skilaboð. 


Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka minnum við á áheitasöfnun því samfara.