Hlaupum til góðs

Nítján þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hafa ákveðið að hlaupa í þágu ADHD samtakanna og sett af stað áheitasöfnun.

ADHD samtökin eru eitt 74 góðgerðarfélaga sem þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka geta hlaupið fyrir í ágúst næstkomandi og um leið vakið athygli á málstaðnum.

Þrítugasta Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn 24. ágúst.

Áheitasöfnun fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is.

Hér má sjá þá sem þegar hafa ákveðið að hlaupa í þágu ADHD samtakanna og hvetjum við alla til að heita á hlauparana og leggja þar með góðu málefni lið.


Einfalt að safna
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en ADHD samtökin eru eitt þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.

Hægt er að deila söfnunarsíðu hlaupara á samfélagsmiðlum og hvetja þannig vini og vandamenn til að heita á sig. Hver sem er getur farið inná hlaupastyrkur.is og heitið á skráða hlaupara.

Hægt er að greiða áheit með kreditkorti, millifærslu eða með því að senda sms skilaboð. 


Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka minnum við á áheitasöfnun því samfara.