Hvetjum okkar fólk - Team ADHD!

Styðjum Team ADHD!
Styðjum Team ADHD!

Vel á annað hundrað einstaklingar munu hlaupa í fyrir ADHD samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu í ár - fleiri en nokkru sinni fyrr. Nú þarf þessi stóri og kröftugi hópur á okkar stuðningi að halda - bæði í formi áheita og hvatningar á hlaupadeginum. 

Með því að heita á hlaupranna í Team ADHD getum við gert starfsemi ADHD samtakanna enn öflugri en ella, og ef fram heldur sem horfir, mun söfnun þeirra í ár, slá öll fyrri met. Bæði er hægt að heita á einstaka hlaupara eða hópinn í heild, en sú leið hentar auðvitað sérstaklega vel fyrir fyrirtæki og þá sem þekkja marga í hópnum.

Hér er hægt að heita á einstaka hlaupara eða hópinn í heild: Hlaukastyrkur-ADHD

Á hlaupadaginn, laugardaginn 24. ágúst, ætlum við einnig að standa á hliðarlínunni og hvetja okkar fólk. Við verðum á tveimur stöðum; Við Ægissíðuna frá Lynghaga frá kl. 9-11 (allir hlaupa þar framhjá) og rétt hjá Nauthólsvík milli 11 og 13 (fyrir þá sem hlaupa 42,2 km). Hægt er að sjá kort af hlaupaleiðunum og hvatningarstöðunum á heimasíðu hlaupsins.

Allir sem vilja leggja sitt af mörkum, hvort sem er með því að hlaupa (hægt að skrá sig til kl. 19. í dag, föstudag í Laugardalshöll), heita á hlaupara eða hvetja á hlaupadaginn, geta skráð sig í Facebook hlaupahóp Team ADHD og fylgst með þar.

Vertu með - styðjum Team ADHD og gerum Reykjavíkurmaraþonið að sannkallaðri ADHD hátíð.