ADHD samtökin vekja athygli á stuttmyndinni Iceland Living sem sýnd verður á RUV næstkomandi sunnudag kl. 20:45 í tilefni af gulum september. Framleiðendur myndarinnar eru Atli Óskar Fjalarson og Viktor Sigurjónsson en ADHD samtökin voru einn af styrktaraðilum stuttmyndarinnar.
Myndin segir frá Braga 12 ára dreng sem býr í afskekktu þorpi á Austfjörðum. Hann finnur sig illa í skólakerfinu og leitar annarra leiða til að fá útrás fyrir hæfileika sína. Í þorpinu eignast hann vin og saman taka þeir sig til og ákveða að taka þátt í hæfileikakeppni á staðnum. Stuttmyndinni er ætlað að vekja athygli á geðheilsu drengja, félagslega einangrun og hvernig það er að passa ekki inn í umhverfið.
Hvetjum alla til að horfa.