Kynningarfundur hagsmunasamtaka á Akureyri

ADHD samtökin, Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð, Einhverfusamtkin og Tourette samtökin bjóða til kynningarfundar á Akureyri á fimmtudag. Fundurinn verður í Brekkuskóla við Laugargötu og hefst klukkan 20:00.

Fulltrúar samtakanna kynna starfsemia, auk þess sem réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Akureyri kynnir starfsemi réttindagæslumanns.

Loks mun Elí Freysson flytja erindi undir yfirskriftinni "Með augum einhverfunnar".

Fundurinn er sá fyrsti í röð funda sem samtökin munu bjóða upp á hringinn í kringum landið en verkefnið er styrkt af Lýðheilsusjóði.

Dagsetning: Fimmtudagur 12. apríl 2018
Tími: Hefst klukkan 20:00
Fundarstaður: Brekkuskóli v/Laugargötu

Senda póst til ADHD samtakanna