Lærðu að láta þér líða vel - Ný bók fyrir krakka

"Lærðu að láta þér líða vel og vera í jafnvægi" er heiti á bók sem Skrudda hefur gefið út.

Bókin er sérstaklega skrifuð fyrir krakka sem eiga erfitt með tilfinningastjórnun en glíma e.t.v. líka við áhyggjur, hvatvísi, vanlíðan, lítið sjálfstraust og ónóga samskiptafærni.

Bókin gefur börnum hagnýt ráð og kennir aðferðir til að átta sig á vandanum, koma auga á styrkleika og veikleika í eigin fari og finna lausnir. Foreldrar fá líka leiðbeiningar um hvernig þeir og aðrir fullorðnir geta stutt börnin í að taka á erfiðleikum sínum.

Bókin er eftir Kathleen G. Nadeau og Judith M. Glasser en Gyða Haraldsdóttir íslenskaði.

 

Áður hefur bókin "Lærðu að hægja á og fylgjast með" eftir Kathleen G. Nadeau og Ellen B. Dixon komið út hjá Skruddu.

Sú bók er mikið notuð í fræðslu til foreldra og meðferð barna með ADHD og hefur gefið mjög góða raun.



Báðar bækur eru til sölu hjá ADHD samtökunum

Senda póst til ADHD samtakanna