Lífið með ADHD - Hildur Kristín Stefánsdóttir tónlistarkona í viðtali.

Hildur Kristín Stefánsdóttir, tónlistarkona og Lífið með ADHD.
Hildur Kristín Stefánsdóttir, tónlistarkona og Lífið með ADHD.

Lífið með ADHD er hlaðvarp ADHD samtakanna, sem reglulega mun birta viðtalsþætti á ruv.is og í öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Í nýjasta þættinum af Lífið með ADHD mætir Hildur Kristín Stefánsdóttir tónlistarkona, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu árin. Hún fékk greiningu á fullorðinsaldri og við spjöllum um hennar reynslu og upplifanir. 

Þáttinn í heild má nálgast hér að neðan og í öllum helstu hlaðvarpsveitum:

Lífið með ADHD – Hildur Kristín Stefánsdóttir

 

Lífið með ADHD, hlaðvarp ADHD samtakanna er  í umsjón Karitasar Hörpu Davíðsdóttur og mun hún fá til sín góða gesti í 40-50 mínútna spjall, sem miðla af reynslu sinni og þekkingu, ekki síst af lífinu með ADHD. Gleði, sorgir, sigrar og óborganlegar lífsreynslusögur í bland við fróðleik um ADHD. Allt sem þú hélst að þú vissir um ADHD, en vissir í raun ekki...