Lífið með ADHD - Móðir barns með ADHD

Móðir barns með ADHD segir frá reynslu sinni í hlaðvarpi ADHD samtakanna.
Móðir barns með ADHD segir frá reynslu sinni í hlaðvarpi ADHD samtakanna.

Lífið með ADHD er hlaðvarp ADHD samtakanna, sem reglulega mun birta viðtalsþætti á ruv.is og í öllum helstu hlaðvarpsveitum. 

Erfiðleikar barns með ADHD hafa ekki einungis áhrif á það heldur einnig umhverfið sem barnið lifir og hrærist í dags daglega. Í þessum þætti af Lífið með ADHD fáum við móður barns með ADHD sem glímir m.a. við það að beita ofbeldi. Við heyrum hennar upplifun og reynslu á því að vera móðir í þessum aðstæðum, samskipti við skólayfirvöld og hvað mætti betur fara.

Þáttinn í heild má nálgast hér að neðan og í öllum helstu hlaðvarpsveitum:

Lífið með ADHD – Móðir barns með ADHD

 

Lífið með ADHD, hlaðvarp ADHD samtakanna er  í umsjón Karitasar Hörpu Davíðsdóttur og mun hún fá til sín góða gesti í 40-50 mínútna spjall, sem miðla af reynslu sinni og þekkingu, ekki síst af lífinu með ADHD. Gleði, sorgir, sigrar og óborganlegar lífsreynslusögur í bland við fróðleik um ADHD. Allt sem þú hélst að þú vissir um ADHD, en vissir í raun ekki...