Lífið með ADHD - nýtt hlaðvarp ADHD samtakanna

Lífið með AHD - nýtt hlaðvarp ADHD samtakanna.
Lífið með AHD - nýtt hlaðvarp ADHD samtakanna.

Lífið með ADHD er nýtt hlaðvarp ADHD samtakanna, sem reglulega mun birta viðtalsþætti á ruv.is og í öllum helstu hlaðvarpsveitum. Í fyrsta þættinum ræðir umsjónarmaður hlaðvarpsins, Karitas Harpa Davíðsdóttir við Katrínu Júlíusdóttur, framkvæmdastjóra og f.v. ráðherra og Alþingiskonu um lífið fyrir og eftir ADHD greininguna, en Katrín var nýverið greind með ADHD.

Í frétt RUV um fyrsta þáttinn kemur fram að Katrínu grunaði aldrei að hún væri með ADHD:

"Þegar læknirinn spurði Katrínu hvort hún hefði einhvern tíma velt því fyrir sér hvort hún gæti verið með ADHD hafði það aldrei hvarflað að henni. Hún er enda með gott minni og hefur alltaf gengið vel í skóla og taldi hún sig því ekki vera með dæmigerð einkenni. Þegar hún fór hins vegar að skoða sjálfa sig betur áttaði hún sig á því að hana einkenndi margt sem gæti tengst röskuninni. „Það var alltaf eirðarleysi í mér, hvatvísi og smá raketta í rassinum,“ viðurkennir Katrín.

Fannst erfitt að þegja í kennslustundum

Meðan á greiningarferlinu stóð minnti faðir Katrínar hana á hve dugleg hún hefði alltaf verið í gegnum tíðina og það er rétt, en hún var dugleg við ýmislegt fleira en nám og starf. „Ég var til dæmis stöðugt uppi á slysó með gat á hausnum,“ rifjar hún upp kímin. „Ég var líka ekki mikið fyrir að vera fín og pen í kjólum heldur var ég hjólandi um hverfið með lögreglusírenu á stýrinu, hjólandi á ljósastaur.“ Og þótt henni hafi gengið vel í námi var alltaf kvartað á foreldrafundum yfir því hvað hún masaði mikið í tímum og truflaði kennsluna. „Ég var alltaf að reyna að bæta mig en ekkert gekk,“ segir hún.

Með tímanum tókst henni að tileinka sér félagslegt læsi og temja sér hegðun sem var henni ekki eins eiginleg og samferðafólki hennar. „Ég þurfti að reyna að sitja á mér og stundum þegja alveg svo ég væri ekki að grípa fram í fyrir fólki. Maður var oft að minna sig á það og mér leið oft ekki vel ef ég var of hvatvís.“

Sjálfsniðurrif og vanlíðan

Margir vinir hennar litu á hvatvísi hennar sem persónueinkenni og sáu ekkert athugavert við það, en stjórnleysinu hjá henni fylgdi gjarnan bæði sjálfsgagnrýni og óöryggi í nánum samböndum hjá henni sjálfri. „Það sem mér fannst óþægilegt við þetta allt saman og það sem ég er að reyna að losa mig við er að ég setti sjálfri mér svo háan þröskuld gagnvart minni eigin hegðun. Ef ég gat ekki staðist kröfurnar sem ég gerði til sjálfrar mín varð ég fúl út í sjálfa mig,“ segir hún.

Lyfin staðfestu greininguna

Þegar greiningin fékkst loks staðfest var skrifað upp á lyf fyrir hana til að aðstoða hana við að lifa með röskuninni og ráða bót á svefnleysinu. Hún var aðeins tortryggin á lyfin en ákvað að láta reyna á þau og sá alls ekki eftir því. „Ég byrjaði að taka lyfin og fyrsta daginn var barnaafmæli hjá litlu drengjunum mínum,“ segir Katrín, sem komst að því sama dag að áreiti frá 25 barnungum afmælisgestum var allt öðruvísi á lyfjunum en Katrín hafði vanist fram að því. Hún fann sér til kærkominnar undrunar að hún var á staðnum, með athygli og gat meðtekið það sem fram fór í veislunni. „Þetta fannst mér merkilegt. Þremur fjórum vikum fór ég að sofa eins og engill,“ segir hún, ánægð með árangurinn. „Þar með staðfestu lyfin greininguna. Ég get fúnkerað dag frá degi.“

 

Þáttinn í heild má nálgast hér að neðan.

Lífið með ADHD – Katrín Júlíusdóttir

Þáttur 1 - Katrín Júlíusdóttir

 

Lífið með ADHD, hlaðvarp ADHD samtakanna er  í umsjón Karitasar Hörpu Davíðsdóttur og mun hún fá til sín góða gesti í 40-50 mínútna spjall, sem miðla af reynslu sinni og þekkingu, ekki síst af lífinu með ADHD. Gleði, sorgir, sigrar og óborganlegar lífsreynslusögur í bland við fróðleik um ADHD. Allt sem þú hélst að þú vissir um ADHD, en vissir í raun ekki...