Málþroskaröskun DLD og ADHD

Tinna Tómasdóttir og Lovísa Jóhannsdóttir talmeinafræðingar
Tinna Tómasdóttir og Lovísa Jóhannsdóttir talmeinafræðingar

Á morgun þriðjudaginn 21. mars ætla Tinna Tómasdóttir og Lovísa Jóhannsdóttir talmeinafræðingar að fræða okkur um málþroskaröskun barna. Málþroskaröskun DLD er dulin skerðing og kemur snemma fram hjá börnum og viðhelst fram á fullorðinsár.

Málþroskaröskun DLD er algeng og sýna rannsóknir að eitt af hverjum 14 börnum glími við einkenni DLD. Málþroskaröskun DLD kemur oft fram samhliða öðrum röskunum t.d. ADHD, lesblindu eða námserfiðleikum. Einkenni DLD og ADHD eru oft svipuð og skarast og því getur stundum verið erfitt að átta sig á hvað er hvað. Vonumst til að sjá sem flesta – málþroskaröskun DLD og ADHD viðkemur okkur öllum.

Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá áminningu um hann: https://fb.me/e/12zVpYrS6

Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt