Mannréttindi fyrir alla - Ráðstefna ÖBÍ

Öryrkjabandalag Íslands býður til ráðstefnu fimmtudaginn 20.nóvember. Yfirskrift ráðstefnunnar er "Mannréttindi fyrir alla" og verður þar kynnt hvernig framtíðarsýn bandalagsins tengist samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Ráðstefnan verður á Hilton Hóteli Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík og stendur fr´aklukkan 9 til 16.

Fyrir hádegi verður greint frá framtíðarsýn bandalagsins í ljósi samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem verður kynntur frá mismunandi sjónarhornum. Einnig mun verða fjallað um félagslega sýn á fötlun sem samningurinn byggir á.

Eftir hádegi verða fjórar málstofur sem munu fjalla um:

  1. Sjálfstætt líf og réttarstöðu
  2. Menntun og atvinnu
  3. Lífskjör og heilsu
  4. Aðgengi og ferlimál.

Munu þar koma fram einstaklingar með sérþekkingu á þessum málefnum, auk þess sem fulltrúar frá mismunandi aðildarfélögum munu greina frá því hvernig samningurinn tengist þeirra málefnum og hvernig hann nýtist sem leiðarvísir í hagsmunabaráttu fatlaðs fólks.

Aðgangur á ráðstefnuna er ókeypis. Boðið verður upp á kaffiveitingar og geta ráðstefnugestir keypt sér léttan hádegisverð.

Skráning og dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.